Reykjavík 2026

Fyrir fólk
eins og þig

Tökum höndum saman um að skapa samfélag þar sem allir hafa efni á að lifa með reisn, öryggi og jöfnum tækifærum.

Skoða stefnuna
Frambjóðendur
XF
Guðmundur Ingi Þóroddsson
Oddviti Reykjavíkurlistans

Fólkið fyrst í okkar borg

Kæru Reykvíkingar. Ég hef lengi brunnið fyrir velferðar- og mannréttindamálum og undanfarin tólf ár hef ég leitt baráttuna sem formaður réttindafélagsins Afstöðu. Í starfi mínu á velferðarsviði Reykjavíkurborgar vinn ég daglega að málefnum viðkvæmra hópa, því þar er hjarta mitt.

Ég starfa einnig sem sérlegur sendiherra (Mental Health Ambassador) á vegum EU Promens. Með grunn í félagsráðgjöf, umbreytingastjórnun frá Yale og nú yfirstandandi meistaranám í opinberri stjórnsýslu og forystu, er ég tilbúinn til að beita reynslu minni fyrir okkur öll.

Tökum höndum saman og sköpum réttlátari borg.

Undirskrift Guðmundar Inga

Guðmundur Ingi Þóroddsson

Oddviti Flokks fólksins í Reykjavík

Okkar helstu áherslumál

Við setjum velferðina í fyrsta sæti og ætlum að beita okkur fyrir raunverulegum breytingum í borginni.

Áhyggjulaust ævikvöld fyrir eldra fólk í borginni

Húsnæðisöryggi fyrir alla

Greiðar samgöngur og hreinni borg

Fjölskyldan og skólamálin

Leysum leikskólavandann

Forgangsröðum fjármunum fyrir fólkið fyrst

Mæltu með
framboðinu

Nú stendur yfir rafræn söfnun meðmælenda vegna borgarstjórnarkosninganna 16. maí.

Viljir þú styðja framboð Flokks fólksins í Reykjavík geturðu mælt með því inni á „mitt svæði“ á island.is með rafrænum skilríkjum.

Setjum Flokk fólksins á kjörseðilinn í Reykjavík

Veldu Reykjavíkurborg og síðan Flokk fólksins af listanum inni á island.is.

Mikilvægt að vita:

  • Aðeins þau sem hafa lögheimili í Reykjavík og kosningarétt þar geta mælt með framboðinu.
  • Hver einstaklingur má aðeins mæla með einu framboði.
Mæla með á island.is