Ríkisstjórnin sló sitt eigið heimsmet í lágkúru með fáránlegu fjárhagslegu ofbeldi gegn öldruðu og veiku fólki rétt fyrir jól.
Þau áform ríkisstjórnarinnar í skjóli nætur að fella brott persónuafslátt aldraðs fólks á eftirlaunum og öryrkja á lífeyrislaunum sem búa erlendis sýnir svart á hvítu einbeittan fjárhagslegan ofbeldishug hennar til þeirra sem reyna að lifa af í bútasaumuðu almannatryggingakerfi þeirra.
Stór hluti þeirra sem reyna að lifa af í þessu ömurlega keðjuverkandi skerðingarkerfi ríkisstjórnarinnar býr við fátækt og einnig í sárafátækt í hennar boði.
Þeim sem hafa gefist upp á því að búa hér á landi í þeirra ömurlega boði í áframhaldandi fátækt og eymd og flutt utan í leit að betra lífi er þegar refsað fyrir það grimmilega í skerðingarkerfinu. Við það að búa erlendis er tekin af öryrkjum og öldruðum t.d. heimilisuppbót, aldursuppbót, framfærsluuppbót og uppbót vegna rekstrar bifreiðar.
Eru ekki allir jafnir fyrir lögum og er það ekki brot á stjórnarskrá að mismuna fólki? Er hægt að mismuna fólki með því að afnema persónuafsláttinn af greiðslum frá Tryggingastofnun ríkisins en ekki af launa- eða lífeyrissjóðstekjum annarra sem búa erlendis?
Hvað með þá sem fá borgað bæði frá TR og lífeyrissjóði og eru með skattkortið og þá persónuafsláttinn hjá lífeyrissjóðnum en ekki TR? Er þá bara tekinn persónuafslátturinn af þeim sem eru með hann hjá TR?
Það er auðvitað ósköp skiljanlegt að þetta fjárhagslega ofbeldi hafi orðið til í fjármálaráðuneyti og það í boði Sjálfstæðisflokksins, en hvar voru Framsókn og Vinstri-græn þegar þessi óskapnaður var lagður fram? Var þetta gert með samþykki þeirra og vissi félags- og vinnumarkaðsráðherra um þetta og samþykkti hann þetta mótbárulaust?
Fyrir ráðherra og okkur alþingismenn er persónuafslátturinn ekki stórmál og hefur ekki úrslitaatriði á afkomu okkur, en það er hrein og klár aðför að umræddum hópi aldraðra og öryrkja erlendis að svipta þá allt að 65.000 króna persónuafslætti á mánuði í skjóli nætur í fjáraukalögum.
Það fer núna fram endurskoðun á almannatryggingalögum er varðar málefni öryrkja og með svona vinnubrögðum eiga öryrkjar ekki von á góðu. Hvað hefur aldrað og veikt fólk gert á hlut þessarar ríkisstjórnar sem réttlætir svona fjárhagslegt ofbeldi og það strax án allrar umræðu og/eða upplýsingar til þeirra?
Við í Flokki fólksins komum í veg fyrir að ríkisstjórnin samþykkti þessa eignaupptöku á persónuafslættinum með því að fá henni frestað um eitt ár. Á þessu ári munum við í Flokki fólksins gera allt til að stöðva þetta fjárhagslega ofbeldi ríkisstjórnarinnar. Við munum aldrei samþykkja svona vinnubrögð gagnvart öldruðu og veiku fólki. Aldrei.