Engar íbúðarhæfar íbúðir á lausu

Níutíu íbúðir voru í standsetningu í lok ágústmánaðar hjá Félagsbústöðum og engar íbúðarhæfar íbúðir á lausu hjá félaginu. Kolbrún Baldursdóttir, borgarfulltrúi Flokks fólksins, lagði fram fyrirspurn um hreyfingu á íbúðum Félagsbústaða og var þetta meðal þess sem kom fram í svari félagsins.
Í fyrirspurninni óskaði Kolbrún eftir svörum varðandi fjölda íbúða sem losnuðu hjá félaginu á síðasta ári og ástæður þess, hve langur tími liði frá því að nýr leigjandi tæki við íbúð og hve margar íbúðir væru lausar hjá félaginu í ágúst og september.

Í svari Félagsbústaða segir að 270 íbúðir komu til úthlutunar hjá félaginu á síðasta ári að milliflutningum meðtöldum, 173 almennar íbúðir, 60 þjónustuíbúðir aldraðra og 37 sértæk búsetuúrræði. Þá kom einnig fram að um 40% þeirra sem flytja úr íbúðum Félagsbústaða fara á almennan markað, 20% flytja í aðra íbúð á vegum félagsins og 10% fara annað eða eru bornir út úr íbúðum sínum.
Furðar sig á fjölda íbúða í standsetningu þegar margir fá ekki viðgerðir
Eftir að íbúðir losna eru þær standsettar að nýju og tekur standsetningarferlið að jafnaði 1-3 mánuði að sögn Félagsbústaða. Líkt og áður sagði voru um níutíu íbúðir í því ferli undir lok ágústmánaðar en að jafnaði eru þær íbúðir sem eru í standsetningarferli um sjötíu talsins hverju sinni. Þær voru því töluvert fleiri í ágúst.

Þá furðaði Kolbrún sig á þessum svörum og segir þetta skjóta skökku við í ljósi þess að hún hafi heimildir fyrir því að fólk sé látið búa í mygluðum íbúðum og fái ekki fullnægjandi viðgerðir. Hún segir marga hafa neyðst til þess að fara í dómsmál vegna slíkra mála. Kolbrún hefur lagt fram fyrirspurnir varðandi svör félagsbústaða og óskar eftir svörum hvers lags viðgerðir fari fram á þessum íbúðum og hve lengi þær munu standa yfir.

Frétt þessi birtist á www.visir.is

Sjá hér: http://www.visir.is/g/2018181009077/engar-ibudarhaefar-ibudir-a-lausu-hja-felagsbustodum-i-lok-agust

Deila