Mörgum kom á óvart þegar Flokkur fólksins náði frábærum árangri í nýafstöðnum kosningum. Mun betri árangri en kannanir höfðu gefið til kynna, sem skilaði sér í kjördæmakjörnum þingmanni í öllum kjördæmum.
Flokkur fólksins og Framsóknarflokkurinn eru óumdeildir sigurvegarar kosninganna. Þessir flokkar eiga það sameiginlegt að hafa lagt mikla áherslu á málefni öryrkja, eldra fólks, barna og fátækra. Niðurstöður kosninganna eru skýrt ákall frá kjósendum til löggjafans um að styrkja verði stöðu þessara hópa. Það er ekki hægt að bíða lengur eftir réttlætinu.
Við verðum að fjármagna heilbrigðiskerfið og manna spítala. Við þurfum að útrýma biðlistunum sem gera það að verkum að veikt fólk og börn þurfa að bíða heilu misserin eftir læknis- og sérfræðihjálp. Það er engan veginn ásættanlegt að fólk þjáist að óþörfu í einu ríkasta landi heims. Þjáning og skerðing lífsgæða verður aldrei metin til fjár, en það myndi fljótt borga sig fyrir ríkið að taka á þessum vanda.
Við verðum að hækka framfærslu almannatrygginga svo að fólk nái endum saman. Við megum ekki láta fólkið okkar bíða fjögur ár í viðbót. Með samvinnu og fyrirhyggju getum við lagað allt þetta og miklu meira til.
Flokkur fólksins er reiðubúinn að takast á við það göfuga verkefni að tryggja öllum réttlæti í okkar ríka landi. Við viljum leggja okkar af mörkum til að auka og efla virðingu almennings á Alþingi Íslendinga. Með því að vinna af heilindum að almannahag munum við senda sólargeisla inn í líf margra bræðra okkar og systra, sem hafa ekki séð til sólar svo árum skiptir.
Fátækt er mannanna verk. Það er í okkar höndum að útrýma henni.
Fólkið fyrst, svo allt hitt!
Höfundur er alþingismaður og formaður Flokks fólksins.