Bifreiðastæðaklukkur í miðborg Reykjavíkur

Reykjavíkurborg ætti að innleiða bifreiðastæðaklukkur í þar til gerð merkt stæði í miðbæ Reykjavíkur og nágrenni. Bifreiðastæðaklukkur eða framrúðuskífur eins og þær eru oft kallaðar gætu komið að gagni ekki einungis í miðbænum heldur líka nálægt háskólanum og víðar. Framrúðuskífan er notuð mjög víða á meginlandinu og hentar vel fyrir borgir af sömu stærðargráðu og/eða breiddargráðu og Reykjavík

Misjafnt yrði eftir stæðum hversu lengi má leggja, allt frá einni upp í tvær klukkustundir eftir því hversu nálægt miðbænum stæðið er. Leyfilegur tími er tilgreindur á skiltum við stæðin. Sé bifreið lagt lengur en heimilt er, klukka rangt stillt eða engin klukka sjáanleg í framrúðu er lagt á stöðugjald skv. ákveðinni gjaldskrá.

Framrúðuskífa sem hér um ræðir kæmi í stað gjaldmæla. Eins og flestir vita er þetta fyrirkomulag á Akureyri og hefur reynst vel. Um það ríkir almenn ánægja. Hægt er að hafa þann tíma sem fólk leggur frítt breytilegan eftir staðsetningu.
Reynslan á Akureyri hefur jafnframt verið sú að tekjur bílastæðasjóðs bæjarins hafa aukist samfara þessu fyrirkomulagi. Sé farið fram yfir tímann hefst gjaldtaka.

Með þessu fyrirkomulagi nýtast stæðin betur og leiða má sterkar líkur að því að verslun í miðbænum muni taka fjörkipp, verði þessu kerfi komið á. Því miður eru fjölmargar verslanir að leggja upp laupana á Laugavegi og Skólavörðustíg. Verslunar- og þjónustufyrirtæki sem eiga sér áratugalanga sögu eru mikilvægur þáttur í menningu borgarinnar. Margir kaupmenn á Laugavegi eru verulega uggandi yfir samdrætti sem orðið hefur í verslun á þessu svæði. Hinn almenni borgari er farinn að leita frekar annað svo sem í Kringluna og Smáralind vegna bæði slæms aðgengis að miðborginni og einnig hárra bílastæðagjalda. Margar verslanir við Laugaveg eru nú að loka og flytja sig annað. Ef fram heldur sem horfir munu einungis minjagripaverslanir standa við Laugaveginn og Skólavörðustíg.

Aðrir möguleikar

Það er löngu tímabært að skoða til hlítar möguleika á að taka upp bifreiðastæðaklukkur miðsvæðis í Reykjavík í stað gjaldmæla. Skorað er á borgaryfirvöld að koma á samstarfshópi borgarinnar og hagsmunaaðila í miðborginni sem myndu kynna sér betur kosti þessa kerfis með það fyrir augum að innleiða það. Með þessu fyrirkomulagi eykst sparnaður umtalsvert við gjaldmælakostnað og viðhaldi á þeim. Með tilkomu nýrra gjaldmæla hefur bifreiðaeigendum eða leigjendum bifreiða reynst auðvelt að taka stæði í gíslingu dögum saman án þess að hægt verði að beita sektarákvæðum. Það hefur borið við að á bifreiðastæðum fyrir framan hótel við Laugaveginn hafi bifreið staðið í sama stæðinu dögum saman, líklega meðan leigjandi/eigandi bifreiðarinnar hefur brugðið sér í nokkurra daga ferð út fyrir borgina. Þetta þarf að hindra að geti gerst og besta leiðin við því er að taka upp bifreiðastæðaklukku. Hagkvæmni hennar er ótvíræð.
Flokkur fólksins í borgarstjórn hefur lagt fram í Skipulags- og samgönguráði tillögu um að teknar verði upp bifreiðastæðaklukkur í miðborg Reykjavíkur.

Kolbrún Baldursdóttir borgarfulltrúi Flokks fólksins

Deila