Greinargerð.
Núverandi löggjöf tryggir ekki með nægjanlegum hætti að allir þeir sem fæðast með skarð í vör eða klofinn góm njóti stuðnings frá sjúkratryggingum til að greiða niður kostnað vegna viðhlítandi tannlækninga og tannréttinga.
Þetta er vegna þess að það er skilyrði í núgildandi löggjöf að tilteknar aðgerðir séu nauðsynlegar vegna alvarlegra afleiðinga meðfæddra galla. Þau matskenndu viðmið sem lögð eru til grundvallar leiða til þess að réttur til niðurgreiðslu er ekki til staðar hjá öllum sem fæðast með klofinn góm og/eða skarð í vör. Hópur barna kemst nú ekki í viðhlítandi aðgerðir vegna þess að kostnaður er hár og Sjúkratryggingar Íslands taka ekki þátt í kostnaði þar sem afleiðingar meðfæddra galla í þessum tilteknu börnum eru að mati stofnunarinnar ekki nógu alvarlegar og telst aðgerð þar af leiðandi ekki nauðsynleg. Börn sem fæðast með klofinn góm og/eða skarð í vör þurfa að ganga í gegnum miklar þrautir. Það er því óboðlegt að hið opinbera geri þeim enn þá erfiðara fyrir.
Þess vegna er lagt til að sjúkratryggingar taki til tannlækninga og tannréttinga vegna meðfæddra galla óháð alvarleika þeirra og hvort aðgerð teljist nauðsynleg.