Guðmundur Ingi Kristinsson, þingmaður Flokks fólksins, veltir því fyrir sér hvers vegna það er svona erfitt að semja um kjör láglaunafólks sem er bara með 320 þúsund krónur á mánuði fyrir skatt.
Guðmundur vakti athygli á þessu í umræðum um störf þingsins á Alþingi í gær þar sem hann las meðal annars upp tölvupóst sem hann fékk frá áhyggjufullri móður í Kópavogi.
Í tölvupóstinum stóð:
„Sveitarfélögin eru að neita að semja á kostnað geðheilsu barnsins míns. Covid-lokanir í skólum hafa verið nógu slæmar en þetta verkfall er algjörlega óskiljanlegt fyrir barn og lokanir í skólum valda barni mínu óbætanlegum skaða. — Móðir í Kópavogi.“
Guðmundur Ingi sagðist hafa spurt ráðherra ríkisstjórnarinnar í óundirbúnum fyrirspurnum hvaða „snillingur“ hafi reiknað það út að lífeyrislaun séu að meðaltali um 250 þúsund krónur á mánuði, atvinnulausir fái 290 þúsund krónur á mánuði og lágmarkslaun séu 335 þúsund krónur á mánuði fyrir skatt. „Ég spyr einnig hvers vegna hlutabótalaun séu 400.000 kr. að lágmarki. Engin svör hafa komið fram um þennan mismun.“
Guðmundur sagði hið rétta að þetta væri ekkert annað en gróft fjárhagslegt ofbeldi.
„Að borga fólki laun sem eru undir fátæktarmörkum er ekkert annað en heimska og það er fáránlegt að viðhalda svona grófri mismunun. Við eigum að vinna að réttlátu samfélagi. Það á að vera sjálfsagt að kjör fatlaðs fólks og langveiks fólks, eldri borgara, atvinnulausra og láglaunafólks séu mannsæmandi. Rétt væri að 400.000 kr. á mánuði fyrir skatt verði lágmarkið og það strax.“
Guðmundur Ingi sagði að lokum að í þessu samhengi væri tillaga Öryrkjabandalagsins um 41 þúsund króna hækkun grunnlauna á mánuði árið 2020 mjög sanngjörn.
„En svarið er nei, sem er undarlegt, sérstaklega í ljósi nýlegra hækkana til okkar og annarra æðstu embættismanna, eins og það er orðað í fréttum. Já, en því miður er það svo að enn einu sinni er ekki sama Jón og séra Jón, æðstu embættismenn þjóðarinnar.“