Flokkur fólksins berst fyrir rétti og frelsi fólks til að vinna eins lengi og það vill. Staða eldri borgara á vinnumarkaði er ekki sem skyldi. Helsta meinið er að þeir eiga ekki auðvelt með að halda vinnunni. Þeir fá laun frá samfélaginu en kerfið er þannig að ef þeir sem komnir eru á eftirlaunaaldur vilja auka tekjur sínar með vinnu þá skerðir það þessi eftirlaun. Þetta er hin alþekkta „króna á móti krónu skerðing“. Hún hindrar áframhaldandi atvinnuþátttöku eldri borgara.
Sóun á mannauði
Lífeyrir skerðist um 45% af atvinnutekjum umfram 100.000 kr. á mánuði. Þá eru atvinnutekjur auk þess skattlagðar. Því er ávinningur lífeyrisþega af atvinnu nánast enginn. Af hverju þarf þetta að vera svona? Hvers vegna má fólk sem „komið er á ákveðinn aldur“ ekki afla sér tekna og borga af þeim skatta eins og aðrir, hafi það á annað borð vilja og getu til og eftirspurn sé eftir kröftum þeirra?
Þessi skerðing er ekki hagstæð fyrir samfélagið. Hún sviptir fólk mannréttindum sem er frelsi til sjálfsbjargar og athafna. Fólk fær ekki að leggja sitt til samfélagsins vilji það gera það. Því er meinuð sú andlega og líkamlega heilsubót sem getur falist í því að vera áfram þátttakandi á vinnumarkaði. Óþarfa sóun á mannauði á sér stað. Borgarar með mikla reynslu og þekkingu eru dæmdir úr leik. Þetta stangast á við fyrirkomulag þessara mála í mörgum nágrannalöndum okkar. Víða í Evrópu hefur fólk rétt til að vinna eins lengi og það vill. Iðulega er kallað eftir störfum fólks þótt það verði sjötugt.
Endurskoða þarf einstrengingslegar reglur um starfslok og skerðingar vegna atvinnutekna eldri borgara hér á landi. Þótt fólk verði sjötugt þýðir ekki að heilastarfsemi þess stöðvist. Í dag er fólk um 70 ára aldur við betri heilsu en fyrir áratugum. Aldrað fólk býr yfir umtalsverðum kostum, menntun og reynslu sem gerir það að góðum starfsmönnum. Flokkur fólksins á þingi hefur barist gegn því að aldraðir séu þvingaðir til að láta af störfum og hefur einnig flutt frumvarp um afnám skerðinga lífeyris vegna atvinnutekna.
Tillögur og umræða í borgarstjórn
Sem borgarfulltrúi Flokks fólksins hef ég lagt fram tillögur og staðið fyrir umræðu um sveigjanleg vinnulok í borgarstjórn. Borgin ætti að hætta að nota aldursviðmið og leyfa þeim sem það geta og vilja að halda áfram að sinna starfi sínu þótt sjötugsaldri sé náð. Borgin ætti líka að þrýsta á ríkið að draga úr skerðingum á lífeyri vegna atvinnutekna svo sem að frítekjumark vegna atvinnutekna yrði hækkað úr 100.000 kr. í 200.000 kr. eða afnumið alfarið.
Fyrir þá sem vilja skipta um starf vegna aldurs, eða t.d. minnka við sig, getur borgin skoðað leiðir til að bjóða upp á tímabundnar ráðningar, hlutastarf eða verktakavinnu við ákveðin verkefni, allt sem hentar hverjum og einum og styrkir atvinnulífið. Eldri borgarar búa yfir mikilli reynslu og þekkingu sem getur nýst áfram.
Borgin ætti að vera fremst í flokki með öll störf í borginni og bjóða upp á sveigjanleika þegar komið er að starfslokum. Reykjavík sem stærsta sveitarfélagið á að vera fyrirmynd annarra sveitarfélaga og leiðandi þegar kemur að breytingum til bóta sem lúta að mannréttindum og jafnrétti.
Eftir Kolbrúnu Baldursdóttur, oddviti Flokks fólksins í borgarstjórn Reykjavíkur