Flokkur fólksins tilkynnir framboð sitt í Reykjavíkurkjördæmi suður

Inga Sæland, formaður og stofnandi flokksins, er í forystusæti listans. Inga stofnaði Flokk fólksins árið 2016 og hefur verið þingmaður hans frá árinu 2017. Hún hefur mælt fyrir tugum mála á Alþingi og verið öflugur og ötull málsvari öryrkja, aldraðra og allra þeirra sem búa við mismunun og fátækt
Wilhelm Wessman skipar annað sæti listans. Wilhelm hefur barist af einurð fyrir auknu réttlæti og bættum kjörum eldra fólks. Hann hefur verið virkur í Gráa hernum og er einn þeirra sem hrundu af stað málsókn gegn ríkinu varðandi meinta eignarupptöku þess í formi skerðinga á greiðslum almannatrygginga vegna áunninna lífeyrissjóðsréttinda.
Helga Þórðardóttir, kennari við Barnaspítala Hringsins og fyrrverandi formaður Dögunar skipar þriðja sætið og Svanberg Hreinsson, framreiðslumeistari, fjórða sæti listans.

Framboðslistinn:
1. Inga Sæland, alþingismaður / öryrki
2. Wilhelm Wessman, hótelráðgjafi / leiðsögumaður / eldri borgari
3. Helga Þórðardóttir, kennari
4. Svanberg Hreinsson, framreiðslumeistari / öryrki
5. Halldóra Gestsdóttir, hönnuður / öryrki
6. Birgir Jóhann Birgisson, tónlistarmaður
7. Valur Sigurðsson, rafvirki / heldri borgari
8. Magano Katrína Shiimi, sjúkraliði
9. Sigurjón Arnórsson, framkvæmdarstjóri
10. Ómar Örn Ómarsson, athafnamaður
11. Hjördís Björg Kristinsdóttir, snyrtifræðingur / sjúkraliði / eldri borgari
12. Sigurður Steingrímsson, verkamaður / eldri borgari
13. Andrea Kristjana Lind Gunnarsdóttir, athafnakona
14. Hilmar Guðmundsson, sjómaður
15. Heiðrún Elsa Harðardóttir, sjúkraliði
16. Guðmundur Þórir Guðmundsson, fv. birfeiðarstjóri / eldri borgari
17. Þóra B. Jónsdóttir, handverkskona
18. Þórarinn Kristinsson, eldri borgari
19. Sigrún Þorleifsdóttir, eldri borgari
20. Óli Már Guðmundsson, myndlistamaður
21. Kristján A. Helgason, öryrki
22. Sigríður Sæland Jónsdóttir, eldri borgari

Deila