Framboðslisti Flokks fólksins í Reykjavík

Kolbrún Baldursdóttir, borgarfulltrúi og sálfræðingur, skipar forystusæti listans. Í öðru sæti er Helga Þórðardóttir, varaþingmaður og kennari við Barnaspítala Hringsins. Þriðja sætið skipar Einar Sveinbjörn Guðmundsson, kerfisfræðingur og Natalie Guðríður Gunnarsdóttir, stuðningsfulltrúi og háskólanemi, það fjórða. Í fimmta sæti listans er Rúnar Sigurjónsson, vélsmiður.

1. Kolbrún Baldursdóttir, borgarfulltrúi og sálfræðingur
2. Helga Þórðardóttir, varaþingmaður og kennari við Barnaspítala Hringsins
3. Einar Sveinbjörn Guðmundsson, kerfisfræðingur
4. Natalie Guðríður Gunnarsdóttir, stuðningsfulltrúi og háskólanemi
5. Rúnar Sigurjónsson, vélsmiður
6. Gefn Baldursdóttir, læknaritari
7. Þráinn Óskarsson, framhaldsskólakennari
8. Harpa Karlsdóttir, heilbrigðisgagnafræðingur
9. Halldóra Gestsdóttir, hönnuður
10. Þröstur Ingólfur Víðisson, yfirverkstjóri
11. Birgir Jóhann Birgisson, tónlistarmaður
12. Stefanía Sesselja Hinriksdóttir, þjónustufulltrúi
13. Kristján Salvar Davíðsson, fv. leigubilsstjóri
14. Hjördís Björg Kristinsdóttir, snyrtifræðingur
15. Valur Sigurðsson, rafvirki
16. Magnús Sigurjónsson, vélfræðingur
17. Ingiborg Guðlaugsdóttir, húsmóðir
18. Margrét Elísabet Eggertsdóttir, félagsliði
19. Ingvar Gíslason, stuðningsfulltrúi
20. Guðmundur Ásgeirsson, lögfræðingur
21. Kristján Karlsson, bílstjóri
22. Gunnar Skúli Ármannsson, læknir
23. Ómar Örn Ómarsson, verkamaður
24. Kristbjörg María Gunnarsdóttir, læknanemi
25. Ólöf S. Wessman, snyrtifræðingur
26. Kristján Davíð Steinþórsson, kokkur
27. Jón Guðmundsson, plöntulífeðlisfræðingur
28. Þórarinn Kristinsson, prentari
29. Berglind Gestsdóttir, bókari
30. Óli Már Guðmundsson, myndlistamaður
31. Bjarni Guðmundsson, fv. leigubílstjóri
32. Guðmundur Þórir Guðmundsson, fv. bílstjóri
33. Wilhelm W. G. Wessman, hótelráðgjafi
34. Hilmar Guðmundsson, fv. sjómaður
35. Sigríður Sæland Óladóttir, hjúkrunarfræðingur
36. Kristján Arnar Helgason, fv. prentari
37. Sigrún Hermannsdóttir, fv. póststarfsmaður
38. Árni Már Guðmundsson, verkamaður
39. Jóna Marvinsdóttir, matráður
40. Ólafur Kristófersson, fv. bókari
41. Sigríður G. Kristjánsdóttir, húsmóðir
42. Baldvin Örn Ólason, verkefnastjóri
43. Inga Sæland Ástvaldsdóttir, alþingismaður
44. Tómas A. Tómasson, alþingismaður
45. Sigríður Sæland Jónsdóttir, húsmóðir
46. Oddur Friðrik Helgason, æviskrárritari

Flokkur fólksins vill auka jöfnuð í Reykjavík og kallar eftir réttlæti fyrir alla samfélagshópa. Borgarbáknið hefur þanist út undanfarin ár með ótrúlegum fjölda nýráðninga en því miður ekki á velferðarsviði eða skóla- og frístundasviði. Mannekla er í mörgum störfum, t.d. í leikskólum, frístundaheimilum og heimaþjónustu. Í ofanálag hafa allt of mörg kostnaðarsöm mistök átt sér stað í útboðum og framkvæmdum hjá borginni. Það er ótækt að bruðla með fjármuni sem gætu annars stórbætt þjónustu og velferð fólks. Til þess að ná fram endurbótum, sem þjóna hagsmunum borgarbúa, er frumskilyrði að borin sé virðing fyrir skattfé þeirra, en þó fyrst og fremst að borin sé virðing fyrir fólkinu sjálfu og þörfum þess.

Fólkið fyrst – svo allt hitt!

Deila