fbpx

Hættið að níðast á öryrkjum

 

Hinn 1. jan. 2017 var afnumin hin svokallaða króna-á-móti-krónu-skerðing á eldri borgara. Markmiðið var að einfalda almannatryggingakerfið. Kerfi sem við öll vitum að er svo stagbætt og flókið að ekki nema færustu sérfræðingar á sviði almannatrygginga botna nokkurn skapaðan hlut í því. Það er skemmst frá því að segja að öryrkjar, fátækasti minnihlutahópur samfélagsins, voru skildir eftir og áfram látnir bera byrðar skerðingarinnar.

Óumdeilt er, að mikil óánægja hefur ríkt með skerðinguna frá því henni var komið á í tíð hinnar svonefndu velferðarstjórnar Vinstri-grænna og Samfylkingar eftir hrun. Flokkur fólksins hefur haft það á stefnuskrá sinni frá upphafi að afnema skerðinguna með öllu, enda metið það svo að um hreina valdníðslu stjórnvalda sé að ræða.

Bjarnargreiði?

Hænuskref var stigið þegar Alþingi samþykkti í vor að lækka krónu-á-móti-krónu-skerðinguna um 35 aura. Lækkunin fól í sér að aðrar tekjur örorkulífeyrisþegans skerðast ekki lengur um 100% á móti lífeyri, heldur um 65%. Lækkunin var látin gilda afturvirkt frá 1. janúar 2019. Í ágúst sl. endurgreiddi Tryggingastofnun síðan öryrkjum mismuninn á tímabilinu sem leiðréttingin tók til.

Að sjálfsögðu var einhvers staðar í kerfinu möguleiki á að hrifsa til baka með vinstri hendinni það sem sú hægri var að gera. Var það gert með því að reikna endurgreiðsluna sem hluta af tekjum ágústmánaðar. Það hafði í för með sér tilheyrandi minnkun húsnæðisstuðnings og hækkun húsaleigu.

Ríður ekki við einteyming

Orðið einteymingur merkir „einfaldur taumur á hesti“. Sá sem ríður við einteyming hefur því aðeins taum öðrum megin við hnakka hestsins. Það er nokkuð öruggt að slíkur taumur er ekki upp á marga fiska. Þannig taum notaði félags- og barnamálaráðherra þegar hann, væntanlega í góðri trú, dró úr krónu-á-móti-krónu-skerðingunni um 35% á eintali við sjálfan sig án þess að tryggja hagsmuni þeirra sem hann sagðist vera að hjálpa.

Ekkert var gert til að koma í veg fyrir þetta gífurlega högg. Afturvirku greiðslunum var t.a.m. ekki dreift á átta mánaða tímabilið sem þær tóku til. Sannarlega hefur borgarstjórn ekki hækkað lágmarkstekjuviðmið sitt svo koma megi í veg fyrir að það skref sem stigið var í viðleitninni til að bæta kjör öryrkjans snúist upp í andhverfu sína.

Það er dapurt að horfa upp á jólagjöfina sem stjórnvöld senda öryrkjum nú sem endranær. Skilaboðin eru skýr. Öryrkjar: Látið ykkur líða illa um jólin!

Inga Sæland formaður Flokks fólksins

Deila