Hvar er réttlætið?

Flokkur fólks­ins hefur á árinu 2019 lagt fram á Alþingi um 20 mál og þar erum að ræða bæði frum­vörp og þings­á­lykt­an­ir. Þetta eru um 10 mál á hvort okkar og er það meira en helm­ingi fleiri mál á mann en hjá þeim flokki sem kemur næst okkur í mál­fjölda á mann, sem er með rétt um 5 mál á hvern þing­mann. Flest okkar mál varða kjör eldri borg­ara, öryrkja og lág­launa­fólk, þar sem allt of stór hópur í þeirra röðum býr við fátækt og svo einnig við sára­fá­tækt, sem er okkur sem ríkri þjóð til hábor­innar skamm­ar. Þarna eru um 10.000 börn sem verða að lifa við fátækt og þar af um 3000 við sára­fá­tækt, sem er óvið­un­andi og ekk­ert annað en brot á stjórn­ar­skránn­i. 

Hækkun á líf­eyr­is­launum eldri borg­ara og öryrkja verður bara 3,5%  nú um ára­mótin eða nær helm­ingi minna en laun eiga að hækka á næsta ári. Enn og aftur er verið að við­halda fjár­hags­legu ofbeldi und­an­far­inna ára­tuga gagn­vart þessum hópi fólks sem hefur það verst í okkar þjóð­fé­lagi. Engin leið­rétt­ing gagn­vart þessum hópi aftur í tím­ann eins og eins og við þing­menn, ráð­herrar og allir aðrir launa­menn hafa feng­ið?

Ef rétt væri gefið ætti per­sónu­af­sláttur að hækka það mikið að lægstu laun og líf­eyr­is­laun væru nú þegar skatt­laus. Þá væri rík­is­stjórnin að fær­ast nær því að hætta að skatta sára­fá­tækt. Þá ætti strax að setja á hátekju­skatt og afnema per­sónu­af­slátt af hátekju­fólki því að þeir tekju­hæstu hafa ekki þörf fyrir per­sónu­af­slátt.

Þá ber þess að geta að ef þessi rík­is­stjórn og fyrri rík­is­stjórnir hefðu staðið við hækk­anir á per­sónu­af­slætti og líf­eyr­is­launum frá Trygg­inga­stofnun rík­is­ins, frá því að tekin var upp stað­greiðsla skatta 1988, væru launin yfir 300.000 krónur skatta- og skerð­ing­ar­laust, í dag en ekki rúm­lega 200.000 krónur sem er sú smánar upp­hæð sem mörgum eldri borg­urum og veiku fólki er boðið upp á í dag til að reyna að lifa á.
Des­em­ber­upp­bót örorku­líf­eyr­is­þega nemur um 45 þús­und krónum eða um 28 þús­und eftir skatt. En þetta er síðan skert hjá stórum hópi líf­eyr­is­þega. Það er stórfurðu­legt að ríkið mis­muni fólki með skerð­ingum fyrir jólin og skerði des­em­ber­upp­bót­ina vegna líf­eyr­is­sjóð­launa þannig í núll og það á sama tíma og þing­menn fá fjór­falt hærri jóla­bónus og það óskert­an.

Þing­menn og emb­ætt­is­menn fá 181 þús­und króna des­em­ber­upp­bót. Mun­ur­inn er 136 þús­und krónur eða rúm­lega 100 þús­und krónur eftir skatt sem er eins og áður segir um fjór­falt meira. Þá er jóla­bónus atvinnu­lausa er 80 þús­und krónur og síðan fá þeir smá auka með hverju barn­i. 

Það er ekki í lagi að við þing­menn fáum svona háa des­em­ber­upp­bót á sama tíma og þeir sem lifa í fátækt, hvað þá í sára­fá­tækt eru að fá skerta des­em­ber­upp­bót. Þessu verður að snúa við og þeir sem lifa á líf­eyr­is­launum fái 181 þús­und krónur í des­em­ber­upp­bót, en við þing­menn verðum skertir fjár­hags­lega eins og líf­eyr­is­þegar þannig að við fáum ekki krónu í bón­us.
Nei, það er ekki til umræðu hjá þess­ari rík­is­stjórn. Lof­orð um leið­rétt­ingu og að þeirra tími væri kom­inn? Nei, ekk­ert um það og enn einu sinni, eru kosn­inga­lof­orðin svik­in. Yfir­lýs­ing um að þessi hópur gæti ekki beðið leng­ur, inn­an­tóm orð, enn og aft­ur.

Þá ætlar rík­is­stjórnin að gefa þessum hópi og lág­launa­fólki lægri skatt­pró­sentu með hægri hend­inni, en taka hana að stórum hluta með vinstri hend­inni til baka með lækkun á per­sónu­af­slætti. Hvers vegna gat þessi rík­is­stjórn ekki að minnsta kosti látið per­sónu­af­slátt­inn vera óbreytt­an? 
Það hefði verið frá­bært skref, að láta hann bara vera eða hækka sam­kvæmt neyslu­vísi­tölu eins og þeim ber að gera. Nei, það er allt of mikið fyrir þessa rík­is­stjórn. Það varð að sjá til þess að þeir sem minnst hefðu það fengju bara sömu smáu hung­ur­lús­ina, eins og þeim hefur verið skammtað unda­farna ára­tugi í boði fjór­flokks­ins.

Árið 2020

Von­andi verður árið 2020 betra hjá þessum hópi og þá von ber ég í brjósti vegna þess að núver­andi rík­is­stjórn hefur séð ljós­ið. Þau undur og stór merki­legi atburður varð nú á þing­inu fyrir jólin að öryrkjar fengu heilar 10.000 þús­und krónur skatta og skerð­ing­ar­laust útborgað í boði rík­is­ins. 

Rík­is­stjórnin hefur nú séð smá ljós­geisla við hin myrka skerð­inga­skóg skatta og keðju­verk­andi skerð­inga sem er sam­kvæmt úreldum almanna­trygg­inga­lög­um, lögum sem von­andi verða ein­földuð á nýju ári öllum til hags­bóta. Loks­ins er kom­inn skiln­ingur á það að til að kjara­bætur skili sér til þeirra sem fá líf­eyr­is­laun verður sú kjara­bót að fara til þeirra skatta og skerð­ing­ar­laust.

Guðmundur Ingi Kristinsson alþingismaður og varaformaður flokks fólksins

Deila