Í landi tækifæranna

Aldrei hef ég upplifað eins mikið vonleysi og sorg í samfélaginu okkar og aldrei hefði ég trúað því að óreyndu að ráðherraherinn sem á að vera brjóstvörn allra landsmanna, skuli einungis vera skjöldur og hlíf fyrir þá sem allt eiga. Fyrir þá sem þurfa ekki á hjálp þeirra að halda enda standa það vel fjárhagslega að þau taka varla eftir því að okurvextir og óðaverðbólga æði hér um samfélagið sem eldur um akur.

Nei, þessi ríkisstjórn hefur stungið fingrunum í eyrun og kosið að túlka neyðarópin frá þeim sem eru að bugast sem gleðióp þeirra sem hafa það að meðaltali alveg rosalega gott. Hver þekkir ekki möntruna um að hér drjúpi smjör af hverju strái af því að OECD segir það. Já, að meðaltali hafa Íslendingar það algjörlega frábært, þar sem kaupmáttur hefur aldrei verið meiri og laun aldrei hærri? Ráðamenn keppast hver í kapp við annan við að reyna að telja fátæku fólki trú um að víst hafi þau það verulega gott. Þetta er jú land tækifæranna. Þvílík hræsni.

Ég kvíði því að skoða pósthólfið mitt hvern einasta dag þar sem tugir bréfa bíða mín frá fátæku fólki í neyð. Póstur eins og: Nú er 1. júní og ég á bara 2.000 kr. til að lifa af út mánuðinn og ég er einungis búinn að greiða húsaleiguna mína. Eða: Ég get ekki meir, ég er bugaður maður. Eða: Ég á ekki fyrir mat handa börnunum mínum. Ef það væri ekki fyrir hjálparstofnanir og ölmusu sem ég þigg annars staðar frá þá myndum við svelta hér heilu hungri í „landi tækifæranna.“

Ráðamenn sitja í fílabeinsturni sínum og strá af og til örlítilli mylsnu af allsnægtaborði sínu yfir hópinn sem drukknandi hrópar á hjálp. En það bólar ekki á raunverulegum aðgerðum til að vinna gegn verðbólgunni í baráttunni gegn örbirgð, í baráttunni gegn vaxandi fátækt.

Á síðastliðnum sex árum hefur fátækt íslenskra barna vaxið úr 9,1% í 13,1%. Hvorki meira né minna en á síðastliðnum sex árum í landi tækifæranna hefur fátækt íslenskra barna vaxið um 44%. Hver hefði trúað því?

Flokkur fólksins hefur lagt fram tugir þingsályktana og frumvarpa sem hefðu ekki aðeins útrýmt sárri fátækt heldur komið í veg fyrir það ófremdarástand sem nú ríkir í samfélaginu í boði vanhæfrar ríkisstjórnar. Sem dæmi má nefna afnám verðtrygingar, leigubremsu/leiguþak, húsnæðisliðinn úr vísitölu, hækkun á lágmarksframfærslu í 400 þús. kr. skatta og skerðingalaust. Öllum okkar málum sturtað í ruslið af ríkisstjórninni.

Skilaboð stjórnvalda eru skýr, við ætlum að skila auðu og erum farin í sumarfrí.

Höfundur er formaður Flokks fólksins.

Deila