Inga orðlaus yfir vaxtahækkunum

Inga Sæland, formaðurr Flokks fólksins, beindi fyrirspurn til Katrínar Jakobsdóttur, forsætisráðherra, í óundirbúnum fyrirspurnatíma á Alþingi í dag þar sem hún spurðu út í vaxtahækkanir bankanna. Var nokkur hiti í Ingu sem skildi ekki hvers vegna ríkisstjórnin ætlaði að líða það að vextir séu hækkaði í þessu árferði.

„Nú eru ríkisbankarnir að ríða á vaðið með að hækka vexti. Ég er algjörlega orðlaus. Ég er algjörlega ORÐLAUS yfir því hvað er verið að bera á borð fyrir okkur núna. Íslandsbanki ríður á vaðið. Landsbankinn auglýsir skattahækkun. Hér hefur forsætisráðherra og ríkisstjórnin undir hennar forystu talað um hvað þeir hafa komið mikið til móts við þá sem minna mega sín í samfélaginu, komið til móts við fjölskyldurnar, það var gerður lífskjarasamningur og það átti að laga vexti. Stýrivextirnir eru jú 1%. Stýrivextir eru 1% en fær fólkið í landinu, almenningur í landinu að njóta þess, núna þegar bankarnir, sem að alþýðan á, sem við eigum íslenska þjóðin, er að hækka vexti?“

Spurði Inga hvort þetta væri ásættanlegt í augum Katrínar nú í þeirri dýpstu kreppu sem þjóðin hefur tekist á við í lengri tíma og á sama tíma og bankarnir eru að skila milljörðum í arð.

Katrín svaraði fyrir að ekkert væri upp á ríkisstjórnina að klaga.

„Þá er ekki hægt að klaga upp á neitt sem ríkisstjórnin hefur gert. Sama hvort horft er til skattkerfisbreytinga, til sérstakra aðgerða til að bæta draga úr kostnaði í heilbrigðiskerfinu, húsnæðiskerfinu, barnabóta, sérstakra aðgerða í þágu öryrkja og eldri borgara. Þessi ríkisstjórn hefur svo sannarlega komið til móts við tekjulægri hópa með öllum þeim tólum og tækjum sem okkur eru búin.“

Ríkisstjórnin hafi ekki aukið jöfnuð heldur dregið úr honum og mælist Íslands með mesta tekjujöfnuð af OECD-ríkjunum.

Inga kallaði svar Katrínar „Ágætis framboðsræðu“

Staðreyndirnar töluðu fyrir sig sjálfar að ójöfnuður væri að aukast dag frá degi og tugir manna að fara á atvinnuleysisbætur og heimili landsins mættu ekki við vaxtahækkunum.

Inga Sæland formaður Flokks fólksins

Deila