Inga Sæland um fólkið á Sævarhöfða: „Nú búa þau við lífshættulegar aðstæður“

Samsett mynd af Ingu Sæland og Bergþóru Pálsdóttur við hjólhýsi.

Bakgrunnsmynd: Vilhelm/Vísir

Inga Sæland gagnrýnir að fólk sem býr í hjólhýsum á Sævarhöfða sé án vatns og rafmagns. Hún varar við því að frost geti haft alvarlegar afleiðingar fyrir fólkið sem þar býr.

„Hrein og klár mannvonska og borgarstjórn til ævarandi skammar,“ skrifar Inga í færslu á Facebook. Hún segir að í vor hafi tekist að tryggja hjólabúum mannsæmandi aðstöðu en að nýr meirihluti í borgarstjórn hafi rift því fyrirkomulagi.

„Nú búa þau við lífshættulegar aðstæður, rafmagns og vatnslaus.“

Tólf manns bjuggu enn á svæðinu

Lokað var fyrir vatn og rafmagn 2. nóvember. Í frétt Vísis sem Inga vísar í kemur fram að Bergþóra Pálsdóttir, talskona Samtaka hjólabúa, hafi sagt að tólf manns byggju enn á svæðinu og hefðu ekki í önnur hús að venda.

Borgarráð vísaði 12. nóvember frá tillögu um að opna aftur fyrir vatn og rafmagn frá 16. nóvember til 1. apríl. Meirihlutinn vísaði til þess að slökkviliðið gerði kröfu um umfangsmiklar úrbætur á brunavörnum. Hann taldi ekki rétt að verja fé í þær úrbætur þar sem uppbygging er fyrirhuguð á svæðinu.

Tengt efni: Vilja skýrar reglur um fasta búsetu í hjólhýsum og húsbílum

Deila