Farþegaskipið glæsta Titanic sökk eins og frægt er fyrir 110 árum. Slysið var afar mannskætt. Aðeins 705 manns björguðust af 2224. Langflestir þeirra farþega sem björguðust voru á fyrsta farrými en flestir farþeganna sem létust voru á þriðja farrými. Þaðan var löng leið og torsótt upp á þilfar og björgunarbátar allt of fáir þegar loks kom að þeim.
Skipstjórinn á Titanic, sem fyrirskipaði að siglt yrði áfram á fullri ferð þrátt fyrir viðvaranir um ísjaka á siglingaleiðinni fékk skellinn. Á svipaðan hátt fengu íslensk stjórnvöld viðvaranir um hættulega efnahagsstefnu fyrir hrunið 2008 en skelltu við skollaeyrum. Skipherrar íslensku bankanna á þessum tíma gerðu reyndar betur en kollegi þeirra á Titanic. Þeir sigldu bæði eigin draumafleyjum í strand og þjóðarskútunni um leið. Stjórnvöld og eftirlitsstofnanir öxluðu enga ábyrgð en fólkið á þriðja farrými, fátækasti þriðjungur þjóðarinnar, fékk hins vegar skellinn. Þúsundir fjölskyldna misstu heimili sín á verðbólgubálinu sem þá æddi yfir sem eldur um akur. Veröld þeirra hrundi eins og spilaborg.
Líkt og Titanic á sínum tíma er íslenska þjóðarskútan nú á viðsjárverðri leið mikillar verðbólgu og verðhækkana á nauðsynjavörum og húsnæði. Fórnarlömbin eru þeir sem stjórnvöld hafa hneppt í fátækragildrur, tekjulágar barnafjölskyldur, öryrkjar og sá hluti eldra fólks sem býr við sára fátækt. Íslensk stjórnvöld bjóða þessu fólki sannarlega ekki að hlöðnu veisluborði eins og því sem skipherra Titanic leiddi farþega fyrsta farrýmis að á sínum tíma. Jólahátíðin, sem brátt fer í hönd er ekki hátíð tilhlökkunar og gleði fyrir þetta fólk heldur kvíðvænlegur tími örbirgðar og vanlíðunar.
Hinn 7. nóv. sl. spurði ég Guðmund Inga Guðbrandsson félags og vinnumarkaðsráðherra hvort hann hygðist koma þeim til hjálpar fyrir jólin sem hefðu ekkert annað að reiða sig á en greiðslur frá Tryggingastofnun. Ætlar ráðherrann að greiða þessu fólki skatta og skerðingarlausan jólabónus?
Í nýbirtum fjárauka kemur svarið fram. Hann ætlar að greiða öryrkjum helminginn af því sem þeir fengu greitt fyrir sl. jól. Enn og eftur á að skilja fátæka eldri borgara útundan. Samkvæmt fjáraukanum fá þeir ekki eina einustu krónu í jólabónus.
Hin sorglega staðreynd er sú að stjórnvöld skeyta litlu um líf og líðan fólksins á þriðja farrými. Það má halda áfram að lepja dauðann úr skel. Eitt er víst að það vantar ótal björgunarbáta fyrir þá sem stjórnvöld hafa sett á þriðja farrými svo tryggja megi þeim mannsæmandi lífskjör. Ég skora á hæstvirtan ráðherra að sjá til þess að þeir sem alfarið þurfa að reiða sig á greiðslur almannatrygginga fái skatta og skerðingarlausar 60 þúsund krónur í bónus fyrir jólin!