Landsfundi frestað

Kæru félagar,

Stjórn Flokks fólksins kom saman í vikunni og tók ákvörðun um að fresta landsfundi flokksins, sem átti að fara fram í Reykjavík þann 2. nóvember næstkomandi.

Á næstu vikum munum við verja öllum okkar kröftum í kosningabaráttuna og vinna saman að sigri í komandi kosningum.
 
Þess í stað er stefnt að því að landsfundur Flokks fólksins verði haldinn stuttu eftir kosningar. Nánari upplýsingar um það verða sendar út síðar.
 
Bestu kveðjur,
Stjórnin

Deila