Listi Flokks fólksins í Norðvesturkjördæmi

Eyjólfur Ármannsson, alþingismaður og lögfræðingur, mun leiða lista Flokks fólksins í Norðvesturkjördæmi í komandi þingkosningum. Lilja Rafney Magnúsdóttir, fyrrum alþingismaður, skipar 2. sæti listans og Bragi Þór Thoroddsen, sveitarstjóri Súðavíkurhrepps, skipar 3. sætið.

Eyjólfur, sem hefur setið á þingi fyrir flokkinn á yfirstandandi kjörtímabili, gegnir stöðu varaformanns fjárlaganefndar og allsherjar- og menntamálanefndar. Hann er formaður Orkunnar okkar og hefur víðtæka reynslu úr fjármálageiranum, efnahagsbrotadeild og lögmennsku.

🗨️„Við erum gríðarlega stolt af þessum öfluga framboðslista,” segir Inga Sæland, formaður Flokks fólksins. „Reynsla Lilju Rafneyjar af verkalýðsmálum, sveitarstjórnarmálum og þingmennsku, ásamt þekkingu Braga Þórs á sveitarstjórnarstiginu og velferðarmálum, styrkir baráttuna fyrir réttlátara samfélagi.”

🐟Listinn endurspeglar sterka tengingu við sjávarútveg og sjávarbyggðir, en á meðal frambjóðenda eru skipstjórar, formaður smábátafélags og strandveiðimenn. „Við munum beita okkur fyrir auknu frelsi til strandveiða og bættum réttindum minni útgerða,” segir Eyjólfur. „Það er mikilvægt að styrkja byggðir sem reiða sig á sjávarútveg.”
„Samgöngumál í kjördæminu eru í ólestri og við munum leggja höfuðáherslu á að bæta þar úr,” bætir Eyjólfur við. „Íbúar Norðvesturkjördæmis eiga rétt á stórbættum samgöngum og innviðum, sem eru undirstaða jöfnunar búsetuskilyrða.”

📌 Norðvesturkjördæmi:
1. Eyjólfur Ármannsson, alþingismaður, Hrafnabjörgum Þingeyri
2. Lilja Rafney Magnúsdóttir, varaþingmaður og fyrrv. alþingismaður, Suðureyri
3. Bragi Þór Thoroddsen, sveitastjóri Súðavíkurhrepps, Súðavík
4. Heiða Rós Eyjólfsdóttir, tanntæknir og hársnyrtir, Blönduósi
5. Kristján Andri Guðjónsson, forstöðumaður Ísafjarðarbæ, Ísafirði
6. Snorri Snorrason, skipstjóri, Sauðárkróki
7. Valda Brokane, skipstjóri, Suðureyri
8. Guðni Már Lýðsson, formaður Smábátafélagsins Skalli, Skagaströnd
9. Dagný Ósk Hermannsdóttir, deildarstjóri eldhúss Heilbrigðisstofnun Vesturlands, Stykkishólmi
10. Hafþór Guðmundsson, strandveiðimaður, Þingeyri
11. Svanur Grétar Jóhannsson, sjómaður, Stykkishólmi
12. Ágúst Heiðar Ólafsson, kerfóðrari Grundartanga, Akranesi
13. Hermann Jónsson Bragason, vélstjóri, Stykkishólmi
14. Andrea Þórunn Björnsdóttir, frumkvöðull í góðgerðarmálum, Akranesi

Deila