Ásthildur Lóa Þórsdóttir alþingismaður og kennari, mun leiða lista Flokks fólksins í Suðurkjördæmi.
Sigurður Helgi Pálmason safnvörður og þáttagerðarmaður skipar 2. sætið, Elín Fanndal félagsliði og varaþingmaður, skipar 3. sætið og Jónas Yngvi Ásgrímsson, stjórnarmaður hjá VR og miðstjórnarmaður ASÍ, það fjórða.
Ásthildur Lóa, sem hefur setið á þingi fyrir flokkinn á yfirstandandi kjörtímabili, er 3. varaforseti Alþingis og situr í Efnahags- og viðskiptanefnd og Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd. Hún hefur verið formaður Hagsmunasamtaka heimilanna frá 2017 og barist fyrir heimilin í okur umhverfi vaxta og húsnæðiskostnaðar þar sem réttindi neytenda á fjármálamarkaði eru oft lítils virt.
Sigurður Helgi Pálmason vinnur að þáttagerð fyrir RÚV og hefur komið mjög víða við í atvinnulífinu. Hann leggur áherslu á að bæta heilbrigðisþjónustu fyrir alla, en þó sérstaklega fyrir eldri borgara, sem hann telur algjörlega fyrir neðan allar hellur. Hann er mikill áhugamaður um íslenska sögu og menningu.
„Við erum gríðarlega stolt af þessum lista,“ segir Inga Sæland formaður Flokks fólksins. „Þarna fáum við nýjar og ferskar raddir inn á þing sem brenna t.d. fyrir málefnum aldraðra og þeirra sem minna mega sín, auk þess að vera með víðtæka reynslu og þekkingu á verkalýðsmálum og baráttu vinnandi fólks.“
Suðurkjördæmi: