Inga Sæland og Alma D. Möller hafa undirritað samstarfssamning við Geðhjálp um stofnun skjólshúss fyrir fólk í tilfinningalegri krísu vegna andlegra áskorana. Um er að ræða lágþröskuldaúrræði þar sem einstaklingar geta leitað sér aðstoðar á eigin forsendum áður en það telur sig þurfa innlögn á geðdeild.
Skjólshús byggir á sjálfsákvörðunarrétti, mannúð og jafningjastuðningi. Þar verður boðið upp á skammtímadvöl að kostnaðarlausu í öruggu og kærleiksríku umhverfi, án þvingunar.
Flokkur fólksins hefur lengi lagt áherslu á að fólk fái stuðning fyrr, með fleiri valkostum og með mannlega nálgun að leiðarljósi. Þetta er raunveruleg viðbót við geðþjónustu landsins og mikilvægt skref í átt að betri heildarlausnum.
