Opnum stríðs­hrjáðu flótta­fólki hlýjan faðm

Nú þegar hafa á annað hundrað flóttamenn frá Úkraínu óskað eftir hæli hérlendis frá því að innrásin hófst og þeim fjölgar enn dag frá degi. Þess er vænst að tekið verði á móti allt að 2.000 manns frá Úkraínu á næstu vikum. Sumir dveljast hér tímabundið en aðrir setjast að lengur og snúa jafnvel aldrei aftur heim. Miklu skiptir að þetta fólk mæti hér hlýju, skilningi og fjölþættri aðstoð.

Umfangsmikillar aðstoðar er þörf 

Margt þessa stríðshrjáða fólks mun setjast að með börn sín í Reykjavík. Þannig getum við átt von á allt að 200 úkraínskum börnum Reykjavíkur innan tíðar. Nú þegar hafa borgarbúar, einkaaðilar og fyrirtæki, sem hafa laust húsnæði eða aukarými, boðið stórum hópi flóttamanna húsnæði í Reykjavík. Þak yfir höfuðið er auðvitað frumskilyrði. Þess vegna er spurt hvort Reykjavíkurborg geti lagt til húsnæði sem allra fyrst en mikill húsnæðisskortur er nú í borginni.

Flóttamennirnir koma hingað til landsins allslausir og í miklu áfalli. Þeir þarfnast tafarlausrar áfallahjálpar og persónulegrar, einstaklingsmiðaðrar aðstoðar fagfólks. Fólkið þarf líka fjárhagsaðstoð til að geta keypt sér mat og aðrar nauðsynjar. Börnunum er nauðsyn að komast sem fyrst í leik- og grunnskóla, í frístund og tómstundir. Afar mikilvægt að þau geti farið að lifa nokkurn veginn eðlilegu lífi í öruggum aðstæðum sem allra fyrst til að endurheimta hugarró.

Nú verður Reykjavíkurborg að standa sig 

Ég óska eftir því að fram fari ítarleg umræða í borgarstjórn um hvernig Reykjavíkurborg ætlar að haga fjölþættri og yfirgripsmikilli aðstoð sinni við flóttamennina og börnin þeirra. Þessi umræða er mjög brýn nú ekki síst í ljósi þess að nú þegar eru langir biðlistar eftir aðstoð af öllu tagi í Reykjavík og biðlistinn eftir félagslegu og sértæku húsnæði er langur. Nú bætist við stór hópur flóttamanna í mikilli þörf og þessu fólki má Reykjavík ekki bregðast. Á sama tíma er ekki hægt að ætlast til að þeim sem beðið hafa vikum og mánuðum saman eftir nauðsynlegri þjónustu, börnum, öryrkjum, fátækum, heimilislausum og eldra fólki, verði ýtt til hliðar og þau látin bíða enn lengur.

Þess vegna er ekki seinna vænna að Reykjavíkurborg setji sig í stellingar og hugsi þessi mál upp á nýtt. Sú staða sem komin er upp kallar á endurskoðun á fjölmörgu ekki síst hvernig útdeila á fjármagni. Kallað er eftir nýrri hugsun og nýrri nálgun sem setur fólk í fyrsta sæti en sópar ekki vandamálum undir teppið. Fólkið fyrst og svo allt hitt!

Höfundur er oddviti Flokks fólksins í Reykjavík.

Deila