Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, hefur birt frumvarpsdrög í samráðsgátt sem eiga að styrkja stöðu launafólks þegar ekki er greitt samkvæmt kjarasamningum.
Lagt er til að krafa um vangoldin lágmarkskjör geti ekki fallið niður vegna þess að starfsmaður gerði ekki kröfu nógu snemma. Almennar fyrningarreglur myndu áfram gilda. Þá gæti starfsmaður á almennum vinnumarkaði krafist sérstakrar greiðslu, svokallaðs févítis, ef atvinnurekandi greiðir undir lágmarkskjörum án réttlætanlegrar ástæðu og leiðréttir ekki greiðsluna innan 18 daga frá því að honum berst skrifleg og rökstudd krafa.
Verkalýðsfélag Akraness styður drögin og segir breytingarnar hafa verið baráttumál félagsins um árabil. Í umsögn sinni nefnir félagið mál starfsmanns Skagans hf. sem Landsréttur dæmdi rúma milljón króna vegna skerðingar á hvíldartíma og vikulegum frídögum. Hæstiréttur sneri niðurstöðunni við vegna tómlætis og starfsmaðurinn fékk ekkert greitt af kröfunni.
„Hvernig á fólk að gera kröfu um laun sem það veit ekki einu sinni að því beri?“ spyr Vilhjálmur Birgisson, formaður félagsins, í umsögninni. Hann bendir á að fólk sem á erfitt með lestur eða skilur takmarkaða íslensku geti átt sérstaklega erfitt með að átta sig á því hvort rétt sé greitt.
