Kosningar 2026

Áherslurnar okkar

Reykjavíkurborg á að þjóna íbúum sínum en ekki öfugt. Við leggjum áherslu á mannúð, skilvirkni og ráðdeild í rekstri borgarinnar.

Mynd af eldri borgurum

Áhyggjulaust ævikvöld

  • Gjaldfrjálst verði í bílastæði fyrir 67 ára og eldri. Ekkert app eða flækjustig.
  • Styðjum við efnaminnstu eldri borgarana með því að veita þeim 50.000 kr frístundastyrk sem eykur félagslega virkni og hreyfingu.
  • Gjaldfrjálst verði í sund fyrir 67 ára og eldri.
  • Stóreflum heimahjúkrun og heimaþjónustu við eldra fólk. Heimavitjanir eiga að vera einstaklingsmiðaðar og taka mið af raunverulegri þörf fólks.
  • Tryggjum skilvirka akstursþjónustu, næringarríkan heimsendan mat og aðgengi að öflugu félagsstarfi fyrir eldra fólk.
  • Blásum til stórsóknar í uppbyggingu hjúkrunarheimila og tryggjum að alltaf séu til lóðir til þess að mæta þörfinni hverju sinni.
  • Bindum enda á þjónustuskerðingar. Efnum loforð borgarinnar við eldra fólk í þjónustuíbúðum og studdri búsetu.
  • Endurvekjum hverfisráðin til að efla íbúalýðræði. Hlustum á eldri borgara með því að efla öldrunarráð Reykjavíkur til muna og virkjum notendaráð félagsmiðstöðvanna.
  • Rjúfum einangrun eldri karlmanna. Fjölgum virkniúrræðum á borð við „Karla í skúrum“ og eflum íþróttastarf eldri borgara.
Mynd af nýbyggingum

Húsnæðisöryggi fyrir alla

  • Klárum framkvæmdir í Úlfarsárdal, flýtum uppbyggingu í Keldnalandi og víkkum vaxtamörk borgarinnar/höfuðborgarsvæðisins fyrir ný hverfi.
  • Eflum samstarf við óhagnaðardrifin byggingarfélög og aukum framboð af hagkvæmum íbúðum í Reykjavík.
  • Tryggjum að nýjum íbúðum fylgi nægjanlegur fjöldi bílastæða. Skortur á stæðum skapar mikil vandamál í grónum hverfum.
  • Hröðum uppbyggingu Sundabrautar sem opnar á framtíðaruppbyggingu svæða eins og Geldinganesi, Gunnunesi, Álfsnesi og á Kjalarnesi.
  • Vindum ofan af ofurþéttingu byggðar. Leggjum áherslu á mannvæna hönnun, græn svæði og ríkar kröfur um birtu og hljóðvist þegar ný hverfi og ný byggð eru skipulögð.
  • Styttum biðlista Félagsbústaða og mætum fjölbreyttum húsnæðisþörfum fólks. Tryggjum að dagsetur sé til staðar fyrir alla heimilislausa, alla daga vikunnar.
  • Stöðvum lóðabrask í borginni. Aukum framboð af lóðum á sanngjörnu verði, setjum skýrari tímamörk á uppbyggingu og herðum reglur um endursölu óbyggðra lóða.
  • Aukum framboð húsnæðis með því að stöðva útgáfu rekstrarleyfa fyrir gististaði í flokki II fyrir atvinnurekna skammtímaleigu á borð við Airbnb.
Mynd af skólastofu

Fjölskyldan og skólamálin

  • Innleiðum árangursríkar lestraraðferðir á borð við Kveikjum neistann og stóreflum ÍSAT kennslu (íslensku sem annað tungumál).
  • Stórbætum aðgengi að greiningarferlum svo sértækur stuðningur við börn hefjist strax. Látum farsældarlögin virka og tryggjum hverri fjölskyldu sinn eigin tengilið í kerfinu.
  • Tryggjum jafnt aðgengi allra barna að íþrótta- og frístundastarfi óháð efnahag og lengjum tímabilið sem börn hafa rétt á frístundastyrk.
  • Tryggjum að grunnskólar í Reykjavík reki eigin eldhús og eldi næringarríkar máltíðir frá grunni, í stað þess að útvista matseldinni til einkafyrirtækja.
  • Stóraukum uppbyggingu meðferðarúrræða ungmenna í samstarfi við ríkið. Mætum vímuefna- og hegðunarvanda með snemmtækri íhlutun í skólum og frístund.
  • Stóraukum aðgengi ungs fólks að sálfræðiaðstoð innan skóla. Eflum ungmennahús og félagsmiðstöðvar sem mikilvæga forvörn.
  • Spyrnum við jaðarsetningu ungra karlmanna og mætum þeirri alvarlegu stöðu að hópurinn leiði tölfræði um sjálfsvíg, vímuefnavanda og fangelsanir.
Mynd af leikskóla

Leysum leikskólavandann

  • Tryggjum 100% systkinaafslátt þannig að foreldrar greiði aðeins fyrir eitt barn í leikskóla eða daggæslu.
  • Bregðumst við bráðavanda leikskóla með vönduðum einingahúsum. Samhliða hefjum við langtímauppbyggingu til að rjúfa vítahring skyndilausna í eitt skipti fyrir öll.
  • Tryggjum öllum börnum leikskólapláss frá 12 mánaða aldri. Tökum upp heimgreiðslur til foreldra sem bíða eftir leikskólaplássi á meðan við brúum bilið.
  • Heimilum fyrirtækjum að reka leikskóla fyrir starfsfólk. Tryggjum að börn haldi plássinu þrátt fyrir starfslok foreldra.
  • Hættum mismunun á kostnaði við dagforeldra og leikskóla. Hækkum niðurgreiðslur frá 12 mánaða aldri og tryggjum dagforeldrum faglega ráðgjöf að danskri fyrirmynd.
  • Opnum sameiginleg leikrými fyrir dagforeldra. Það skapar skemmtilegri dag fyrir börnin og tengslanet svo dagforeldrar geti leyst hvort annað af í veikindum eða fríum.
Mynd af umferð

Greiðar samgöngur og hreinni borg

  • Nýtum endurskoðunarákvæði í samgöngusáttmála sveitarfélaga til að stöðva að þrengt sé að einkabílnum á stofnæðum.
  • Fjölgum bílastæðum í stað þess að fækka þeim. Það sækja ekki allir þjónustu í strætó eða á hjóli.
  • Fjölgum göngubrúm og undirgöngum í stað gönguljósa við fjölfarnar götur. Þannig greiðum við fyrir umferð og stóraukum öryggi gangandi og hjólandi.
  • Innleiðum snjallstýrð umferðarljós um alla borg til að bæta umferðarflæði. Bílaraðir eiga ekki að myndast við rauð ljós á auðum gatnamótum.
  • Vindum ofan af græðgisvæðingu og flækjustigi bílastæðakerfisins. Tökum til í app-frumskóginum, lækkum óhófleg gjöld og styttum gjaldskyldutímann að nýju.
  • Sópum og hreinsum götur borgarinnar oftar og drögum úr svifryki.
  • Drögum úr umferðarteppum með því að ljúka viðræðum við stóra vinnustaði og skóla um breytingu á upphafstíma vinnu og vaktaskipta.
  • Tryggjum Reykjavíkurflugvöll áfram í Vatnsmýrinni. Við styðjum byggingu nýrrar og betri flugstöðvar þar til og ef nýr innanlandsflugvöllur verður byggður.
  • Fjölgum stæðum fyrir rafskútur og tryggjum að þeim sé skilað þangað, svo þær liggi ekki eins og hráviði um alla borg.
Skipulag og skilvirkni

Einföldum stjórnkerfið og hagræðum

  • Stöðvum útþenslu báknsins með því að frysta ráðningar á skrifstofum borgarinnar. Beinum fjármagninu í að efla framlínustörf og stórbæta grunnþjónustu.
  • Innleiðum nýja og lausnamiðaða þjónustumenningu hjá borginni. Minnkum skriffinnsku með því að straumlínulaga leyfisferla og setja ströng tímamörk á afgreiðslu mála.
  • Skerum markvisst niður ferðakostnað og drögum verulega úr utanlandsferðum kjörinna fulltrúa og embættismanna borgarinnar.
  • Stöðvum bruðlið í stafrænum málum borgarinnar. Eflum samstarf við önnur sveitarfélög og Stafrænt Ísland til að samnýta lausnir fyrir rafræna þjónustu.
  • Öll innkaup borgarinnar verða samræmd í gegnum sameiginlegt aðfangakerfi sem tryggir yfirsýn, hagkvæmni og gagnsæi.