Flokkur fólksins tekur alvarlega réttindi einstaklinga er varða persónuupplýsingar þeirra og leggur áherslu á gagnsæi.
Flokkur fólksins tekur alvarlega réttindi einstaklinga er varða persónuupplýsingar þeirra og leggur áherslu á að þær séu unnar með lögmætum, sanngjörnum og gagnsæjum hætti.
Persónuverndarstefna Flokks fólksins er sett í samræmi við ákvæði laga nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, og Evrópureglugerð 2016/679 (General Data Protection Regulation „GDPR“) um vernd einstaklinga á því sviði.
Í stefnu þessari kemur fram í hvaða tilgangi persónuupplýsingum er safnað og hvernig þær eru varðveittar, með hvaða hætti flokkurinn nýtir sér slíkar upplýsingar, hvert upplýsingunum kunni að vera miðlað og með hvaða hætti gætt sé að öryggi þeirra. Er stefnunni meðal annars ætlað að veita flokksmönnum þá fræðslu sem flokknum ber að veita samkvæmt lögum nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, sem og samkvæmt verklagsreglum stjórnmálasamtaka um vinnslu persónuupplýsinga á samfélagsmiðlum í tengslum við almennar kosningar.
Persónuupplýsingar í skilningi stefnu þessarar eru upplýsingar um persónugreindan eða persónugreinanlegan einstakling, þ.e. upplýsingar sem hægt er að rekja beint eða óbeint til ákveðins einstaklings, sbr. skilgreiningu í 3. gr. laga nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga.
Flokkur fólksins, Fjörgyni 1, 112 Grafarvogi, kt: 620416-2740, er ábyrgðaraðili þeirra persónuupplýsinga sem veittar eru flokknum og flokkurinn hefur aflað sér.
Flokkur fólksins er stjórnmálaflokkur, þ.e. frjáls félagasamtök, sem stofnaður var um tiltekin stefnumál, hugmyndafræði og skoðanir, en ein af forsendum lýðræðis er að frjáls starfsemi stjórnmálasamtaka fái að þrífast. Af þeirri ástæðu njóta stjórnmálaflokkar stjórnskipulegrar verndar sem sérstaklega mikilvægar félagagerðir í lýðræðisríki. Það er nauðsynlegt er fyrir stjórnmálasamtök að skrá og vinna persónuupplýsingar í starfi sínu, m.a. í þeim tilgangi að halda utan um félagaskrár og réttindi og skyldur félaga, og miðla upplýsingum til flokksfélaga og eftir atvikum annarra.
Flokkur fólksins aflar og vinnur með persónuupplýsingar um flokksmenn, skráða stuðningsmenn, starfsmenn og þá sem flokkurinn á í viðskiptasambandi við. Flokkurinn safnar einungis þeim upplýsingum sem nauðsynlegar eru til að flokkurinn geti sinnt skyldum sínum gagnvart framangreindum aðilum.
Að meginstefnu til aflar Flokkur fólksins persónuupplýsinga beint frá flokksmönnum, skráðum stuðningsmönnum, starfsmönnum eða þeim sem hann á í viðskiptasambandi við. Upplýsingar kunna þó jafnframt að koma frá þriðju aðilum, t.d. þjóðskrá, stjórnvöldum og fyrirtækjum.
Sú vinnsla persónuupplýsinga sem snýr að flokksmönnum og skráðum stuðningsmönnum þjónar þeim megintilgangi að koma upplýsingum áleiðis og auðvelda þátttöku í starfi flokksins. Til að tryggja áreiðanleika þeirra upplýsinga sem flokkurinn varðveitir eru þær uppfærðar eftir þörfum, t.d. með því að samkeyra upplýsingar við þjóðskrá.
Ólíkra upplýsinga kann að vera aflað eftir því hvers eðlis samband einstaklings er við flokkinn. Hér að neðan má nálgast yfirlit yfir þær persónuupplýsingar sem flokkurinn kann að afla. Upplýsingum um nöfn, kennitölu, heimilisföng, netföng og símanúmer er ekki deilt með þriðja aðila nema það sé óhjákvæmilegt í þágu þess tilgangs sem að ofan er lýst.
Flokkur fólksins heldur skrá um nöfn þeirra sem eru aðilar að flokknum með beinum hætti. Jafnframt er haldin skrá um þau sem greiða félagsgjöld og um þau sem gegna trúnaðarstörfum fyrir flokkinn, auk starfsmanna hans.
Upplýsingarnar eru einkum nýttar til þess að aðgreina þá sem bera sömu nöfn hvern frá öðrum, að afla upplýsinga um aldur og nota sem einkvæmt auðkenni til að sækja reglulega uppfærslu í þjóðskrá. Þær eru jafnframt nýttar til þess að fá upplýsingar um hverjir eru bannmerktir í þjóðskrá/símaskrá.
Notað til að skrá flokksfélaga í rétt félög, koma áleiðis upplýsingum í bréfpósti og staðsetja einstaklinga í sveitarfélög og kjördæmi sem ræður m.a. kjörgengi og rétti til þátttöku í prófkjörum.
Notað til að senda upplýsingar til flokksfélaga, svo sem um viðburði, fundi eða stefnumál, hjá þeim sem hafa veitt heimild. Hægt er að afþakka frekari tölvupóst eða símtöl hvenær sem er.
Aðild einstaklinga að Flokki fólksins er samkvæmt samþykktum flokksins. Flokkur fólksins heldur úti miðlægri flokksskrá þar sem varðveittar eru upplýsingar um alla flokksmenn, um trúnaðarstörf, og upplýsingar er tengjast fjáröflun.
Aðgang að flokksskránni í heild hafa einungis þeir starfsmenn Flokks fólksins sem vegna starfa sinna þurfa þess og er henni ekki deilt með þriðja aðila.
Í tengslum við val á framboðslista og kosningar geta frambjóðendur fengið aðgang að kjörskrá gegn því að undirrita trúnaðaryfirlýsingu um meðferð hennar. Við gerð kjörskrár eru netföng undanskilin, en frambjóðendur geta óskað eftir að skrifstofa flokksins sendi út tölvupóst fyrir sína hönd á þau sem ekki hafa hafnað slíkum sendingum.
Vefsíða Flokks fólksins er öllum opin. Við notumst við tól á borð við Google Analytics og Facebook Pixel til að safna ópersónugreinanlegum upplýsingum um heimsóknina þína til að bæta upplifun á vefnum.
Á vefsíðunni kunna að vera hlekkir á vefsíður utan okkar léns. Flokkur fólksins hefur ekki stjórn á þeim síðum og ber ekki ábyrgð á persónuverndarstefnu þeirra.
Flokkur fólksins leggur áherslu á öryggi og trúnað og beitir viðeigandi tæknilegum og skipulagslegum ráðstöfunum til að vernda persónuupplýsingar gegn óleyfilegum aðgangi, afritun, notkun eða miðlun þeirra.
Flokkur fólksins deilir ekki persónuupplýsingum með fyrirtækjum, stofnunum eða einstaklingum nema skylt sé samkvæmt lögum. Flokknum er þó heimilt að miðla upplýsingum til vinnsluaðila sem er þjónustuveitandi á vegum flokksins (t.d. fyrir örugga geymslu gagna eða upplýsingatækniþjónustu). Vinnsluaðili fær einungis aðgang svo fremi að trúnaður ríki um gögnin og þau séu einungis nýtt í tilteknum tilgangi samkvæmt lögum og reglum.
Flokkur fólksins varðveitir persónuupplýsingar í þann tíma sem nauðsynlegur er í samræmi við tilgang og markmið vinnslu hverju sinni.
Einstaklingur á rétt á að vita hvort Flokkur fólksins vinni með persónuupplýsingar um þá eða ekki. Einstaklingur getur farið fram á að fá aðgang að upplýsingum sínum, látið leiðrétta þær, eyða þeim eða takmarkað vinnslu þeirra. Til að fá framangreindar upplýsingar ber að hafa samband með því að senda tölvupóst á personuvernd@flokkurfolksins.is.
Öllum er frjálst að skrá eða afskrá sig á póstlista flokksins og er sá möguleiki ætíð til staðar neðst í fréttapóstum.
Þá hefur einstaklingur rétt á að bera upp spurningar eða leggja fram kvörtun við Persónuvernd ef eitthvað þykir athugavert við meðferð flokksins á persónuupplýsingum.