Samgöngusáttmálinn – skortur á faglegri þekkingu

Kolbrún Baldursdóttir, borgarfulltrúi Flokks fólksins, sakar aðra borgarfulltrúa um skort á faglegri þekkingu í umræðunni um samgöngusáttmála fyrir höfuðborgarsvæðið. Ummælin féllu í grýttan jarðveg meðal borgarfulltrúa.

„Vegtollar eru ekki málið, það er gjörsamlega búið að sýna það af sérfræðingum. Hér inni er ekki nema í mesta lagi einn sérfræðingur í þessum málum, það er borgarfulltrúi Sjálfstæðismanna hann Ólafur Guðmundsson, aðrir eru „amatörar,“ hafa ekki hundsvit á þessu og það má sjá bara einfaldlega í öllum gögnum hérna,“ sagði Kolbrún í umræðu um samkomulagið í borgarstjórn í dag. 

Vísaði Kolbrún máli sínu til stuðnings í röksemdafærslu Félags íslenskra bifreiðaeigenda sem leggist gegn vegtollum. „Þetta eru mjög sannfærandi rök,“ sagði Kolbrún um leið og hún hvatti aðra borgarfulltrúa til að kynna sér þau. Ummæli Kolbrúnar féllu í grýttan jarðveg. Líf Magneudóttir borgarfulltrúi Vinstri grænna var meðal þeirra sem tók til varna. Sagði hún orð Kolbrúnar bæði ósanngjörn og ósmekkleg auk þess sem hún væri að draga úr trúverðugleika helstu sérfræðinga landsins í samgöngumálum.

Þá hæddist Kolbrún einnig að orðum Sigurborgar Óskar Haraldsdóttur, borgarfulltrúa Pírata og formanns skipulags- og samgönguráðs, sem hafði í ræðu sinni nefnt að stefnan væri að stutt yrði í borgarlínu frá flestum heimilum á höfuðborgarsvæðinu.

„Í alvöru talað, húsnæði fyrir alla nálægt borgarlínu?“ sagði Kolbrún og flissaði. „Samkvæmt því sem að við höfum séð þá eru stöðvar borgarlínu náttúrlega aldrei að geta komið alveg upp að dyrum hjá fólki alls staðar í öllum hverfum borgarinnar. Hér er ekkert raunsæi í gangi hjá borgarfulltrúanum Sigurborgu Ósk Haraldsdóttur,“ sagði Kolbrún.

 

Hlekkur á upprunalegu fréttina á vísi.

Kolbrún Baldursdóttir borgarfulltrúi Flokks fólksins

Deila