Guðmundur Ingi Kristinsson, þingmaður Flokks fólksins, lagði til á Alþingi í gær að finnska leiðin yrði tekin upp hér á landi varðandi sektargreiðslur til lögreglu.
„Eigum við ekki að vera sanngjörn og réttlát og taka upp finnsku leiðina, að sekta í prósentum launa, ekki krónutölum.“
Guðmundur Ingi setti málið í samhengi við upphæðina á sektum vegna nagladekkja, sem er 20 þúsund krónur á hvert dekk, alls 80 þúsund fyrir fjögur dekk:
„80 þúsund krónur af 200 þúsund krónum í útborguðum launum eru 40 prósent. Af 400 þúsund krónum launum eru það 20 prósent. Af 800 þúsund krónum launum eru það 10 prósent. Er það sanngjarnt?“
spurði Guðmundur og taldi svo ekki vera.
Guðmundur sagði sektir ekkert annað en gjöld til ríkisins og vildi að þær tækju mið af launum fólks, ekki síst þegar til stæði að setja á veggjöld og fólk greiddi allskyns önnur gjöld til ríkisins:
„Ég held að kominn sé tími til að ef við viljum og ætlum að bera einhverja virðingu fyrir réttlæti og lýðræði breytum við þessu þannig að það sé sanngjarnt að allir greiði jafnt.“