Ragnar Þór skipar starfshóp um leigutryggingar og eftirlit

Mynd með frétt um starfshóp um leigutryggingar og eftirlit á leigumarkaði

Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, hefur skipað starfshóp sem á að leggja til breytingar á fyrirkomulagi leigutrygginga og eftirliti á leigumarkaði.

Markmiðið er að auka réttarvernd og húsnæðisöryggi á leigumarkaði, einfalda og skýra ferla þegar leigusali gerir kröfu í tryggingafé, auka fyrirsjáanleika um endurgreiðslu þess og fækka ágreiningsmálum.

Hópurinn á einnig að móta tillögur um nýtt eftirlitshlutverk Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar (HMS), meðal annars við vottun kröfuferla. Gert er ráð fyrir að hópurinn skili tillögum sínum til ráðherra í formi frumvarps um breytingar á húsaleigulögum snemma árs 2027.

Í hópnum sitja fulltrúar samtaka launafólks, leigjenda, húseigenda, neytenda, atvinnulífs, fjármálaþjónustu og HMS. Formaður hans er Lísa Margrét Sigurðardóttir.

Skipun hópsins er liður í aðgerðum til að styrkja stöðu leigjenda og bæta leigumarkaðinn sem kynntar voru í vor.

Heimild: Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, 3. nóvember 2026.

Deila