Þingmenn Flokks fólksins, þau Inga Sæland og Guðmundur Ingi Kristinsson, vilja sporna gegn samþjöppun á eignarhaldi aflaheimilda í sjávarútvegi. Hafa þau lagt fram frumvarp á Alþingi sem hefur það markmið.
Í kjölfar uppljóstrana úr Samherjaskjölunum hefur verið fjallað um það hvernig Samherji á um 16 prósent af öllum aflaheimildum á Íslandi í gegnum tengd félög. Þar sem eignarhlutur Samherja í Síldarvinnslunni á Austurlandi nær ekki 50 prósentum teljast félögin hins vegar ekki sem einstakur aðili, en þá væri kvótaeignin komin yfir 12 prósenta hámark þess sem einn aðili getur átt af kvóta.
„Til að tryggja virka samkeppni og sporna við því að veiðiheimildir safnist á fáar hendur eru í lögum um stjórn fiskveiða ákvæði sem kveða á um að samanlögð aflahlutdeild tengdra aðila megi ekki fara umfram ákveðið hlutfall heildarafla,“ segir í greinargerð með frumvarpinu. „Það er mikilvægt að tryggja virka samkeppni í fiskveiðum. Virk samkeppni í sjávarútvegi stuðlar að aukinni vernd neytenda, launþega og einnig betri nýtingu auðlinda. Fiskveiðistofnar Íslandsmiða eru ein helsta auðlind þjóðarinnar og því er mikilvægt að tryggja að aðgangur að þeirri auðlind safnist ekki á fáar hendur.“
Þingmennirnir segja núverandi löggjöf gallaða þegar kemur á skilgreiningu á tengdum aðilum. „Í skýrslu Ríkisendurskoðunar um starfsemi Fiskistofu kom m.a. fram að Fiskistofa kanni ekki hvort tengsl séu á milli aðila með markvissum og reglubundnum hætti heldur reiði sig alfarið á upplýsingar frá handhöfum aflaheimilda. Þar kom einnig fram að Fiskistofa teldi að það væri í raun óframkvæmanlegt að afmarka hvort tengsl væru til staðar vegna „raunverulegra yfirráða“ þar sem ákvæðið væri of matskennt.“
Markmiðið með frumvarpinu er því að veita Fiskistofu heimild til að sinna eftirliti með samþjöppun aflaheimilda og grípa til aðgerða ef svo er. „Þannig verður betur tryggt að auðlindir þjóðarinnar safnist ekki á of fáar hendur með tilheyrandi neikvæðum afleiðingum,“ segir loks í greinargerð.
Frétt þessi birtist á Stundin.is