Landsfundur Flokks fólksins var haldinn helgina 8. – 9. september 2018. Það sem stendur upp úr er þakklæti til ykkar allra, sem gerðuð fundinn eins glæsilegan og raun ber vitni. Sérstakar þakkir fá þeir sem lögðu á sig þrotlausa og óeigingjarna vinnu við undirbúning og umsjón með fundinum. Einnig þeir sem unnu í málefnahópunum sem skiluðu frá sér glæsilegum ályktunum landsfundarins. Síðast en ekki síst þakkir til allra þeirra sem buðu sig fram til trúnaðarstarfa fyrir Flokk fólksins.
Með vinsemd og virðingu,
Inga Sæland formaður Flokks fólksins