Viljayfirlýsing um uppbyggingu 108 rýma hjúkrunarheimilis í Hafnarfirði

Inga Sæland, Kristján Sigurðsson og Valdimar Víðisson skáluðu fyrir samkomulaginu í rjúkandi heitu súkkulaði með rjóma.

Félags- og húsnæðismálaráðherra og Vigdísarholt ehf. hafa undirritað viljayfirlýsingu um byggingu og rekstur nýs hjúkrunarheimilis með allt að 108 rýmum í Vatnshlíð við Ásvallarbraut í Hafnarfjörður. Jafnframt var gerður samningur milli Vigdísarholts og Hafnarfjarðarbæjar um úthlutun lóðar á svæðinu.

Endanleg staðsetning lóðarinnar og stærð byggingarinnar verður ákveðin af Hafnarfjarðarbæ þegar deiliskipulag liggur fyrir. Stefnt er að því að endurskoðun aðalskipulags ljúki næsta vor og að lóðin verði framkvæmdahæf árið 2027.

Hafnarfjarðarbær mun afhenda lóðina án endurgjalds í samræmi við gildandi lög. Bænum er þó heimilt að innheimta gatnagerðargjöld samkvæmt samkomulagi ríkis og sveitarfélaga um ábyrgðaskiptingu við uppbyggingu hjúkrunarheimila. Vigdísarholt skuldbindur sig til að hefja framkvæmdir eigi síðar en tveimur árum eftir afhendingu lóðar.

Inga Sæland, félags og húsnæðismálaráðherra, segir:

„Með þessari viljayfirlýsingu við Vigdísarholt og Hafnarfjarðarbæ erum við að senda skýr skilaboð: Við ætlum að bregðast við. Við ætlum að byggja upp. Og við ætlum að gera það í samstarfi og með hagsmuni fólksins að leiðarljósi. Ég óska Hafnfirðingum innilega til hamingju með þennan áfanga og hlakka til að fylgjast með verkefninu raungerast.“

Kristján Sigurðsson, framkvæmdastjóri Vigdísarholts, segir:

„Stjórnendur Vigdísarholts eru mjög spenntir fyrir þessu nýja verkefni og uppbyggingu öflugs lífsgæðakjarna á svæðinu. Verkefnið samrýmist vel framtíðarsýn Vigdísarholts um heildstæða og metnaðarfulla þjónustu sem miðar að bættum lífsgæðum íbúa. Áform Vigdísarholts fela í sér að reisa hjúkrunarheimili þar sem velferð, virðing og einstaklingsmiðuð nálgun er höfð að leiðarljósi“

Valdimar Víðisson, bæjarstjóri Hafnarfjarðar, segir:

„Svona uppbygging snýst um öryggi, þjónustu og reisn fyrir eldra fólk og aðstandendur þeirra. Nú förum við af fullum krafti í skipulagsvinnuna svo lóðin verði tilbúin til framkvæmda árið 2027. Þetta er mjög mikilvægt skref fyrir Hafnarfjörð og ég fagna því að við séum komin með skýra viljayfirlýsingu um uppbyggingu hjúkrunarheimilis fyrir allt að 108 rými. Þörfin er mikil.“

Í kjölfar undirritunar viljayfirlýsingarinnar hefst vinna við aðalskipulag og hönnun af fullum krafti. Vonir standa til að framkvæmdir geti hafist á fyrri hluta næsta árs og að nýtt hjúkrunarheimili taki til starfa árið 2029.

Deila