Yfirlýsing vegna umfjöllunar í fjölmiðlum um fjármál Flokks fólksins

Á síðustu dögum hefur farið fram umfjöllun í fjölmiðlum um fjármál Flokks fólksins. Stjórn Flokksins vill því ítreka eftirfarandi: 

Samkvæmt lögum um fjármál stjórnmálaflokka hafa öll fjármál Flokks fólksins verið lögð árlega og skilvíslega undir skoðun löggilts endurskoðanda og Ríkisendurskoðunar. Einnig hafa ársreikningar flokksins verið lagðir fyrir aðalstjórn, kjörna skoðunarmenn, fjármála- og efnahagsmálanefnd, framkvæmdastjórn og landsfund Flokks fólksins til skoðunar og samþykktar áður en þeim er skilað til Ríkisendurskoðunar. Í þessu stranga eftirlitsferli allra hlutaðeigandi og ofangreindra aðila hafa aldrei komið fram athugasemdir sem gefa í skyn að fjármál Flokks fólksins séu vafasöm á nokkurn hátt. Hægt er að sjá úrdrátt af endurskoðuðum og samþykktum ársreikningi Flokks fólksins á vefsíðu Ríkisendurskoðunar (rikisendurskodun.is) og á heimasíðu flokksins (flokkurfolksins.is)

Stjórn Flokks fólksins ítrekar fyrri yfirlýsingu sína um að þeir Alþingismenn sem komu fram á upptökunum frá fundi stjórnar Miðflokksins, og Ólafs Ísleifssonar þáverandi þingflokksformanns og Karls Gauta Hjaltasonar þáverandi varaformanns þingflokks og þáverandi stjórnarmanns Flokks fólksins, á barnum Klaustri 20. nóvember sl. ættu að axla ábyrgð á eigin gjörðum og segja strax af sér þingmennsku. 

Stjórn Flokks fólksins

Deila