Við hefðum getað lokað landinu

„Eftir þrjá daga þá eru akkúrat níu mánuðir liðnir frá því að fyrsta CO­VID-til­fellið greindist á Ís­landi. Nú höfum við verið að ganga í gegnum risa bylgju, þriðju bylgju far­aldursins,“ sagði Inga sem rifjaði upp að mánuði áður en fyrsta til­fellið greindist hér á landi hafi hún staðið í ræðu­stól til að spyrja stjórn­völd hvernig þau hugðust bregðast við hugsan­legum heims­far­aldri sem þá var í upp­siglingu.

„Í rauninni hefur maður nú lítið fengið að heyra annað, a.m.k. á þessum fyrstu mánuðum en háð og spott og verið jafn­vel tekin fyrir í Kast­ljósi allra lands­manna og sallað þar niður eins og hálf­gerður bjáni. En ég ætla að segja það að ef ég hefði fengi að ráða, eins og einn á­gætur mann­vinur og góð­vinur okkar allra, Kári Stefáns­son, hafði sagt, þá værum við ekki að glíma hér við grímu­skyldu, fjar­lægðar­mörk, lokunar­styrki og hundruð milljarða skulda­söfnun ríkis­sjóðs. Hér mundi kerfið og okkar inn­viðir ganga snurðu­laust. Hér værum við ekki að ein­angra gamalt fólk og á­hættu­hópa. Hér værum við ekki að velta fyrir okkur hvort við þyrftum að loka skólum. Hér hefðum við ein­fald­lega viður­kennt sér­stöðu okkar, 370.000 manna ey­ríki norður í ballar­hafi. Við hefðum getað lokað landa­mærunum og al­gjör­lega komið í veg fyrir það að þessi veira væri að ríða hér röftum um sam­fé­lagið sem raun ber vitni. Við hefðum getað valið sjálf þá um­ferð sem við hefðum talið nauð­syn­lega um landamærin.“

Inga minntist á að staðan núna væri betri en oft áður og smit hér á landi væru nú með þeim fæstu í Evrópu. Þó væri mjög stutt síðan hlut­fall smita hér var með því hæsta í Evrópu.

„En nú er staðan önnur, virðu­legi for­seti, og ég bara spyr: Erum við að bíða eftir því núna að þetta lækki pínu­lítið þannig að við getum farið að hleypa veirunni inn aftur eða ætlum við að tryggja það hér og nú að við getum haldið saman hei­lög jól?“

Deila